February 02, 2026
EKKERT ÁL: lífræn kaffihylki - gerð úr kaffi, fyrir kaffi
Við hjá Sjöstrand trúum því að kaffi eigi að vera jafn gott fyrir plánetuna og það er fyrir bragðlaukana. Þess vegna höfum við þróað lífræn hylki, gerð úr náttúrulegu úrgangsefni - ekkert ál og ekkert plast - eingöngu aukaafurð sem fellur til við brennslu kaffibauna (hismi) og færi annars til spillis. Fyrir okkur snýst þetta ekki bara um nýja tegund af hylkjum, heldur um skuldbindingu til að endurhugsa neyslu okkar til framtíðar.
Af hverju ekkert ál og plast?
Hefðbundin kaffihylki byggja að stórum hluta á efnum sem skilja eftir sig varanlegt umhverfisspor:
- Framleiðsla áls er afar orkufrek og krefst mikilla auðlinda til að bræða og móta efnið. Endurvinnslan er að sama skapi orkufrek.
- Flest hylki eru aðeins að hluta endurvinnanleg - ál má gjarnan endurvinna, en plast og sílikonhringirnir eru ekki endurunnin.
- Aðeins lítill hluti álhylkja skilar sér í endurvinnslu, meirihlutinn endar í landfyllingu.
- Plast- og álhylki geta legið í náttúrunni í hundruð ára án þess að brotna raunverulega niður.
Við fundum snjallari og hringrásarvænni lausn. Með því að endurnýta kaffihýðið (e. silverskin/chaff) - þunna himnu sem losnar náttúrulega af baununum við brennslu, búum við til lífrænt hráefni fyrir nýju hylkin okkar.
Kaffihismið er enginn venjulegur úrgangur. Það býr yfir einstökum eiginleikum og inniheldur allt að 86% leysanlegar trefjar. Hismið, sem er venjulega hent, er nú orðið lykilatriði í sjálfbærni vegferð Sjöstrand, notað í niðurbrjótanleg hylki sem standast hámarks gæðakröfur í samanburði við aðrar hylkjategundir, án þess að umhverfið þurfi að taka sinn toll.

Kaffihylki í hringrás
Með nýju hylkjunum okkar skilur kaffið þitt eftir sig afar lítið umhverfisspor, þar sem kaffihismið úr einni framleiðslu endurfæðist sem hylki fyrir þá næstu. Þannig náum við fram gæða kaffi í lokaðri hringrás þar sem ekkert fer til spillis og án efa vistvænni kostur í hylkjakaffi. Til viðbótar innihalda hylkin lífrænt ræktað og Fairtrade vottað Sjöstrand kaffi.
Lífrænn úrgangur
Hylkin eru lífræn sem við kjöraðstæður brotna niður á um 12 vikum. Hafa ber í huga að erfitt getur verið að skapa slíkar aðstæður á Íslandi og jafnvel þótt hylkið endi í almennu sorpi skilur það samt eftir sig minna umhverfisspor en hefðbundnir valkostir.
Með nýjum hylkjum nær Sjöstrand einstakri hringrás - kaffihismi nýtist í kaffihylki, sem síðan endar í lífrænum úrgangi til framleiðslu á metangasi.
