Fyrirtækjalausnir

Er ekki kominn kaffitími?

Sjöstrand býður upp á umhverfisvænan valmöguleika fyrir fyrirtæki, hótel og aðra vinnustaði. Með því að sameina einfaldleika, hreinlæti og sjálfbærni í bragðgóðum bolla er Sjöstrand kjörinn kostur fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.

Grunnhugmyndin á bakvið Sjöstrand er að bjóða uppá vörur í klassískri hönnun sem standast tímans tönn og passa í hvaða rými sem er. Sjöstrand kaffihylkin innihalda lífrænt ræktað og Fairtrade vottað kaffi og hylkin sjálf eru unnin úr úrgangsefnum frá kaffiristun - kaffihylki gerð úr kaffi, fyrir kaffi.

split-banner image

KAFFIHYLKI Á VINNUSTAÐ?

Það eru ýmsir kostir sem fylgja því að bjóða uppá kaffihylki á vinnustöðum.
Helst ber að nefna hreinlæti og viðhald, hylkjavélarnar halda viðhaldskostnaði í algjöru lágmarki á meðan hreinlæti er í hámarki. Sjöstrand býður uppá 5 mismunandi kaffitegundir, 4 bragðbættar til viðbótar og 2 tegundir af boost hylkjum. Það býður uppá að starfsmenn drukkið mismunandi drykki, sitt uppáhald, úr einni og sömu vélinni. Vélarnar eru einfaldar í notkun, hraðvirkar og hljóðlátar. Hylkjakaffið helst alltaf ferskt, sem er mikill kostur miðað við kaffi á öðru formi, og hægt er að gera ráð fyrir fullri nýtingu á kaffikaupum.

SJÖSTRAND X KAFFITÁR

Sjöstrand og Kaffitár í öflugu samstarfi.

Samstarfið styrkir stöðu beggja aðila á fyrirtækjamarkaði. Með sameiginlegu framboði Kaffitárs og Sjöstrand verður nú hægt að bjóða viðskiptavinum heildstæða og öfluga lausn sem mætir fjölbreyttum þörfum fyrirtækja og stofnana. Lögð er áhersla á gæði, einfaldari innkaupaferla og betri þjónustu.

Með samstarfinu opnum við nýjan valmöguleika fyrir fyrirtæki og getum svo sannalega þjónustað fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum. Viðskiptavinir hafa nú val um hylki, baunir og malað gæðakaffi ásamt öllum nauðsynlegum vélbúnaði frá einum og sama aðilanum.
split-banner image

Frítt kaffi í eina viku - prufaðu Sjöstrand vél á þínum vinnustað

Fáðu Sjöstrand á þinn viðburð

HAFA SAMBAND

Segðu stuttlega frá kaffiþörfum þíns fyrirtækis/vinnustaðar – við höfum samband eins fljótt og auðið er. Fylltu út formið hér að neðan eða sendu okkur línu á sjostrand@sjostrand.is.

Ánægðir viðskiptavinir

MEÐMÆLI